Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga Skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur dags. 6. janúar 2011 að breytingu á skilmálum deiliskipulags Borgarholts 2, Borgarhverfis A vegna lóðanna nr. 15-25 og 27-35 við Vættaborgir. Í breytingunni felst aukning á byggingarmagni en byggingarreitir haldast óbreyttir. Erindið var auglýst frá 9. febrúar 2011 til og með 23. mars 2011. Engar athugasemdir bárust.