Fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn Jóns H. Hlöðverssonar dags. 23. febrúar 2011 varðandi breytingu á deiliskipulagi Hallar, Hamrahlíðarlönd og suðurhlíðar Úlfarsfells, vegna lóðarinnar nr. 1 við Friggjarbrunn. Í breytingunni felst fjölgun íbúða ásamt fjölgun bílastæða. Einnig lagður fram tölvupóstur Jóns H. Hlöðverssonar dags. 24. febrúar 2011.