Fyrirspurn
Á fundi skipulagsstjóra 1. apríl 2011 var lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 29. mars 2011 þar sem sótt er um leyfi til að breyta einhalla skúrþaki með því að koma fyrir rishæð með mænisþaki á húsið, með tvo kvisti á sitt hvorri þakhlið, einnig er sótt um að byggja sólstofu á 1. hæð með svölum yfir hluta, í einbýlishúsnæðinu á lóð nr. 32 við Langagerði. Erindinu var vísað til meðferðar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 8. apríl 2011. Jákvæð fyrirspurn BN042543 dags. 15. febrúar 2011 þar sem spurt var hvort leyfi fengist til að setja ris með kvistum á einbýlishúsið. Stækkun: XX ferm., XX rúmm. Gjald kr. 8.000 + XX