Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 11. ágúst 2015 þar sem sótt er um samþykki á áður gerðri íbúð á 1. hæð/jarðhæð og til að stækka garðskýli þar sem verða geymslur fyrir íbúðir hússins, einnig að gera nýjan glugga á 1. hæð norðurhliðar á fjölbýlishúsi á lóð nr. 9A við Ránargötu. Erindi var grenndarkynnt frá 20. ágúst til og með 17. september 2015. Engar athugasemdir bárust.
Gjald kr. 9.823