Fyrirspurn
Á fundi skipulagsstjóra 4. mars 2011 var lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 1. mars 2011 þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja útitröppur við bakhlið þríbýlishúss á lóð nr. 29A við Bragagötu. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra svæðisins og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 7. mars 2011.