(fsp) veitingastaður
Laugavegur 15
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 528
20. febrúar, 2015
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 6. febrúar 2015 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 3. febrúar 2015 þar sem sótt er um leyfi til að rífa skúrbyggingar og byggja steinsteypta viðbyggingu á bakhlið, kjallara og tvær hæðir með garði á þaki, koma fyrir lyftu og innrétta sem stækkun á verslunum og gistiheimili sem fyrir eru í húsinu á lóð nr. 15 við Laugaveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. febrúar 2015.
Stækkun: 386,1 ferm., 1.322,3 rúmm.
Gjald kr. 9.823
Svar

Ekki gerð athugasemd við erindið, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. febrúar 2015.