Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs dags. 22. janúar 2014 varðandi breytingu á deiliskiplagi Grjótaþorps vegna lóðanna nr. 17 og 17a við Garðastræti. Í breytingunni felst að sameina lóðirnar í eina lóð, Garðastræti 17 í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs þann 11. september 2013 með vísan í greinargerð byggingarfulltrúa frá 14. desember 2012.
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Garðastræti 15 og 17 og Mjóstræti 4 og 6.