Fyrirspurn
Á fundi skipulagsstjóra 15. apríl 2011 var lagt fram bréf byggingarfulltrúa dags. 14. mars 2011 varðandi erindi Gests Ólafssonar dags. 11. mars 2011 vegna afmörkunar lóðarinnar nr. 17 við Garðastræti. Einnig er lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu dags. 28. mars 2011 og bréf Gests Ólafssonar f.h. eigenda Garðastrætis 17 dags. 6. apríl 2011. Erindinu var vísað til umsagnar og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn lögfræði og stjórnsýslu dags. 13. maí 2011.