Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs dags. 22. janúar 2014 varðandi breytingu á deiliskiplagi Grjótaþorps vegna lóðanna nr. 17 og 17a við Garðastræti. Í breytingunni felst að sameina lóðirnar í eina lóð, Garðastræti 17 í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs þann 11. september 2013 með vísan í greinargerð byggingarfulltrúa frá 14. desember 2012. Tillagan var auglýst frá 23. desember 2013 til og með 7. febrúar 2014. Engar athugasemdir bárust.