Fyrirspurn
Á fundi skipulagsstjóra 1. apríl 2011 var lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 29. mars 2011 þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja viðbyggingu á skipulögðum bílskúrsreit við raðhúsið á lóð nr. 39 við Háagerði. Til vara er spurt hvort byggja megi bílskúr sem innangengt væri í og notaðist til íbúðar á sömu lóð. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra svæðisins og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 19. maí 2011.