Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Ólafs Ó. Óskarssonar, mótt. 8. október 2015, varðandi breytingu á deiliskipulagi Reynisvatnsás vegna lóðarinnar nr. 124-126 við Haukdælabraut. Í breytingunni felst breyting á byggingarreit lóðarinnar, samkvæmt uppdr. VA arkitekta ehf. dags. 15. ágúst 2015. Tillagan var grenndarkynnt frá 1. desember til og með 29. desember 2015. Engar athugasemdir bárust.