Lögð fram fyrirspurn Elínar Þórólfsdóttur dags. 12. júlí 2018 um að bæta við vetnistöð á lóð nr. 101 við Miklabraut, með einni dælu sem er bætt við núverandi dælur ásamt búnaði, samkvæmt uppdr. Dap dags. 11. júlí 2018. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. júlí 2018.
Svar
Ekki eru gerðar athugasemdir við að umsækjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað sbr. umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. júlí 2018.