Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 6. september 2011 þar sem sótt er um leyfi til að byggja tvo kvisti á austurhlið þaks fjölbýlishússins á lóð nr. 13 við Skipasund. Erindi var grenndarkynnt frá 14. september til og með 12. október 2011 en þar sem samþykki hagsmunaaðila barst dags. 18. september 2011 er erindi nú lagt fram að nýju.
Jákvæð fyrirspurn dags. 17. maí 2011 og samþykki meðlóðarhafa dags. 17 ágúst fylgir.
Stækkun: 6,8 ferm., 10 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 800