Fyrirspurn
Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. maí 2011 þar sem spurt er hvort stækka megi útbyggingu til suðurs, hækka risið á henni, koma fyrir nýjum kvisti á norðurhlið og breyta innanhússskipulagi í einbýlishúsi á lóð nr. 82 við Langagerði. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 13. maí 2011.