Fyrirspurn
Á fundi skipulagsstjóra 12. ágúst 2011 var lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. ágúst 2011 þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja bílskúr með geymslukjallara við fjölbýlishúsið á lóð nr. 20 við Mávahlíð. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra svæðisins og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 17. ágúst 2011.
Erindi fylgir þinglýst eignaskiptayfirlýsing dags. 29. mars 1999 og samþykki meðeigenda dags. 24. og 27. júlí 2011.