Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 13. september 2011 þar sem sótt er um leyfi til að byggja staðsteyptan bílskúr á lóð fjölbýlishúss á lóð nr. 20 við Mávahlíð. Erindi fylgir samþykki lóðarhafa Mávahlíðar 22 dags. 22. ágúst 2011 og þinglýst eignaskiptayfirlýsing dags. 1. desember 2000. einnig samþykki lóðarhafa í Mávahlíð 18, 20 og 22 árituð á uppdrátt dags. 5. september 2011. Einnig fylgir erindi jákvæð fyrirspurn dags. 23. ágúst 2011 og samþykki meðeigenda dags. 24. og 27. júlí 2011 sem fylgdu með fyrirspurn. Stærð: 27,2 ferm., 79,1 rúmm. Gjald kr. 8.000 + 6.328
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Mávahlíð 18 og 22 og Drápuhlíð 17, 19 og 21.