Fyrirspurn
Á fundi skipulagsstjóra 19. ágúst 2011 var lögð fram fyrirspurn Þuríðar Ottesen dags. 18. ágúst 2011 varðandi hækkun hússins nr. 7 við Óðingötu. Einnig er lögð fram umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 12. ágúst 2011. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra svæðisins og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 24. ágúst 2011.