Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 21. febrúar 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 18. febrúar 2014 þar sem spurt er hvort portbyggja megi hús, breyta kvistum og færa svalir á suðurgafl hússins á lóð nr. 1 við Óðinsgötu. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. mars 2014.