Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. nóvember 2014 þar sem sótt er um leyfi til að byggja steinsteypta viðbyggingu á bakhlið, hækka þak, byggja svalir og innrétta íbúðarherbergi í risi íbúðar- og atvinnuhúss á lóð nr. 1 við Óðinsgötu.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda áritað á uppdrátt dags. 10. og 13. október, umsögn Minjastofnunar Íslands og Borgarsögusafns dags. 16. september 2014. Stækkun: 47,2 ferm., xx rúmm. Gjald kr. 9.500 EInnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. nóvember 2014.