Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Þuríðar Ottesen dags. 3. apríl 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.181.0 vegna lóðarinnar nr. 1 við Óðinsgötu. Í breytingunni felst hækkun á rishæð hússins svo það verði portbyggt, koma tveimur kvistum fyrir á götuhlið og setja svalir á suðurgafl, samkvæmt uppdr. K.J. hönnunar ehf. dags. 19. mars 2014. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 18. mars 2014 og umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 10. apríl 2014.