Fyrirspurn
Á fundi skipulagsstjóra 30. september 2011 var lögð fram fyrirspurn Þuríðar Ottesen dags. 23. september 2011 varðandi breytingar á húseigninni á lóð nr. 1 við Óðinsgötu ásamt aukningu á byggingarmagni, samkvæmt uppdrætti K.J. hönnun dags. 23. september 2011. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra svæðisins og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 4. október 2011.