Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 16. janúar 2016 var lögð fram fyrirspurn Húsfélagsins að Bogahlíð 7-9, mótt. 4. janúar 2016, um að fjölga bílastæðum á lóð nr. 7-9 við Bogahlíð um eitt. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar samgöngudeildar og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 21. janúar 2016 og umsögn samgöngudeildar, dags. 19. janúar 2016.