Fyrirspurn
Á fundi skipulagsstjóra 26. ágúst 2011 var lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 23. ágúst 2011 þar sem spurt er hvort leyfi fengist til að breyta atvinnuhúsnæði á jarðhæð í íbúðarhúnæði á lóð nr. 47 við Grandaveg. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra svæðisins og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 29. ágúst 2011.