Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 7. febrúar 2012 þar sem sótt er um leyfi til að rífa eldri viðbyggingu og byggja nýja og stærri í staðinn á suðurhlið ásamt því að endureinangra loft einbýlishússins á lóð nr. 5 við Fjólugötu. Umsögn skipulagsstjóra Reykjavíkur dags. 12 september 2011 og bréf frá hönnuði fylgir. Niðurrif: 34 ferm., 80 rúmm. Nýbygging: 64,4 ferm., 185,4 rúmm. Gjald kr. 8.500 + 1.576]
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Fjólugötu 3 og 7, Laufásvegi 36 og 38 og Sóleyjargötu 3 og 5.