Fyrirspurn
Á fundi skipulagsstjóra 9. september 2011 var lögð fram fyrirspurn Valdimars Harðarsonar dags. 9. september 2011 um að rífa niður núverandi viðbyggingu, og byggja nýja, við húsið nr. 5 við Fjólugötu, samkvæmt uppdr. Ask arkitekta dags. 8. september 2011. Einnig er sótt um að hafa tvö bílastæði á lóð. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra svæðisins og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 12. september 2011.