Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 27. september 2011 þar sem sótt er um leyfi til að byggja nýjan kvist á austurhlið tvíbýlishúss á lóð nr. 5 við Mosgerði. Bréf frá eiganda dags. 8. sept. 2011 og samþykki meðeiganda dags. 8. sept. 2011 fylgir. Stækkun 1,8 rúmm. Gjald kr. 8.000 + 144
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Mosgerði 3 og 7 og Melgerði 8, 10 og 12.