Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 24. janúar 2012 þar sem sótt er um leyfi til að innrétta fimm íbúðir, stækka bílskúr, byggja nýjar svalir á 2. hæð norðurhliðar og gera svalalokun á 1. og 2. hæð, loka inngangi frá Laugavegi, byggja nýjar tröppur á bakhlið, lækka lóð og gera fjögur bílastæði við fjölbýlishús á lóð nr. 139 við Laugaveg. Gjald kr. 8.500