Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 31. maí 2019 var lögð fram fyrirspurn Oddgeirs Þórðarsonar mótt. 16. maí 2019 um að breyta bílskúr við austurhlið húss á lóð nr. 75 við Laugarásveg í íbúð. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. júní 2019.