Á fundi skipulagsstjóra 9. janúar 2013 var lögð fram efsta hugmynd í skipulagsflokki á Betri Reykjavík frá 31. október 2012 " Matarmarkaður við höfnina á sumrin" ásamt samantekt af umræðum og rökum. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. desember 2012. Erindinu var vísað til meðferðar skrifstofustjóra skipulags byggingar og borgarhönnunar og er nú lagt fram að nýju.