Fyrirspurn
Á fundi skipulagsstjóra 30. nóvember 2012 var lögð fram efsta hugmynd í skipulagsflokki á Betri Reykjavík frá 31. október 2012 " Matarmarkaður við höfnina á sumrin" ásamt samantekt af umræðum og rökum. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju. Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags.14.desember 2012.