Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 11. mars 2022 var lögð fram fyrirspurn Stefaníu Þórhildar Hauksdóttur dags. 7. mars 2022 um að stækka íbúðir efstu hæðar hússins á lóð nr. 6 við Skarphéðinsgötu upp í ris hússins. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. mars 2022.