Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi Helga Guðmundssonar dags. 5. janúar 2012 varðandi breytingu á deiliskipulagi Hamrahverfis vegna lóðarinnar nr. 30 við Dverghamra. Í breytingunni felst að lóð er stækkuð, samkvæmt uppdrætti Bjarka Guðmundssonar dags. janúar 2012. Tillagan var grenndarkynnt frá 16. janúar til og með 13. febrúar 2012. Engar athugasemdir bárust.