Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 28. ágúst 2015 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 25. ágúst 2015 þar sem spurt er hvort leyfi fengist til að hækka um 1,5 metra hlöðuhluta hesthúss á lóð nr. 8 við B- tröð. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. september. Erindi fylgir samþykki meðeigenda ódagsett.