Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 4. apríl 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. mars 2014 þar sem sótt er um leyfi til að breyta skrifstofubyggingu í gistihús (gististað) í flokki III á lóð nr. 43 við Fiskislóð. Einnig er lagt fram bréf LEX dags. 2. apríl 2014 og tölvupóstur Guðjóns Ármannssonar hrl. f.h. Miðfells ehf. dags. 8. maí 2014. Erindinu var frestað og er nú lagt fram að nýju ásamt bréfi Faxaflóahafna dags. 27. júní 2014.
Stærðir: 2272,3 ferm., 7697,6 rúmm. Lóðarstærð 3687 ferm. nýtingarhlutfall 0,6. Gjald kr. 9.500