Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn
Plúsarkitekta ehf.
f.h. F43 ehf. mótt. 3. janúar 2017 varðandi breytingu á deiliskipulagi Örfiriseyjar vegna lóðar nr. 43 við Fiskislóð. Í breytingunni felst að stækka byggingarreit um 2,2 metra til suðausturs og auka nýtingarhlutfall með millilofti úr 0,6 í 0,67, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdr.
Plúsarkitekta ehf.
dags. 13. desember 2017. Tillagan var grenndarkynnt frá 21. febrúar 2018 til og með 21. mars 2018. Engar athugasemdir bárust.