Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 21. mars 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 18. mars 2014 þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja viðbyggingu á norðurhlið, 1. og 2. hæð fjölbýlishúss á lóð nr. 15 við Safamýri. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagfulltrúa dags. 3. apríl 2014.