Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi Sigurbjargar Söndru Guðnadóttur dags. 12. febrúar 2012 varðandi breytingu á deiliskipulagi Foldahverfis, 4. og 5. áfanga vegna lóðarinnar nr. 120-122 við Fannafold. Í breytingunni felst að byggingarreitur er stækkaður, samkvæmt uppdrætti Ask Arkitekta ehf. dags. 20. febrúar 2012. Tillagan var grenndarkynnt frá 15. mars til og með 19. apríl 2012. Engar athugasemdir bárust.