Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 31. júlí 2012 þar sem sótt er um leyfi til þess að sameina tvo kvisti á norðurhlið, byggja svalir á vesturhlið og breyta innra fyrirkomulagi íbúðar á þriðju hæð (rishæð) hússins á lóðinni nr. 58 við Flókagötu. Málinu vísað til skipulagsstjóra til ákvörðunar um grenndarkynningu með nýjum uppdráttum. Vísað er til uppdráttar, A-001 dags. 20. maí 2012, síðast breytt 19. júlí 2012.
Umsögn skipulagsstjóra dags. 25.01.2012 (v. fyrirspurnar BN044018) fylgir erindinu.Samþykki meðeigenda (á teikn.) fylgir erindinu.Ný skráningartafla fylgir erindinu.Útskrift ú gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 27. júlí 2012 fylgir erindinu.Stærð: Húsið er nú skráð 1178,3 rúmm. og 401,0 ferm. en verður eftir breytingu skráð 1186,2 rúmm. og 426,0 ferm. Stækkun húss: 7,9 rúmm. og 25,0 ferm.
Gjald kr. 8.500 + 8.500 + 671.
Einnig er lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 24.ágúst 2012.