Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfundi frá 22. janúar 2013 þar sem sótt er um leyfi til þess að breyta innra fyrirkomulagi á fyrstu og annarri hæð, fjarlægja glugga og byggja kvisti á þakhæð hússins á lóðinni nr. 18 við Baldursgötu. Erindi var grenndarkynnt frá 31. janúar til og með 28. febrúar 2013. Eftirtaldir aðilar sendu inn ábendingu: Elín R. Sigurðardóttir dags. 1. mars 2013.
Umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 17. janúar 2013 fylgir erindinu.
Gjald kr. 9.000