Fyrirspurn
Á fundi skipulagsstjóra 30. janúar 2012 var lögð fram fyrirspurn Rafns Guðmundssonar dags. 25. janúar 2012 varðandi viðbyggingu við húsið á lóðinni nr. 23 við Bárugötu ásamt lækkun á gólfi, samkvæmt meðfylgjandi teikningu ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 2. febrúar 2012.