Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 16. maí 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 13. maí 2014 þar sem spurt er hvort breyta megi aðkeyrslu þannig komið verði að sitt hvorri íbúðinni frá sitt hvorum botnlanganum að parhúsi á lóð nr. 162 við Sogaveg. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.