Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 27. mars 2012 þar sem spurt er hvort leyfi fengist til að rífa niður einbýlishúsið og byggja í staðin parhús á lóð nr. 162 við Sogaveg. Lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags.29.mars 2012.