Á fundi skipulagsfulltrúa 19. febrúar 2016 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 16. febrúar 2016 þar sem sótt er um leyfi til breytinga innanhúss fyrir Hlemm matarmarkað í strætóbiðstöð á lóð nr. 107 við Laugaveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 3. mars 2016. Gjald kr. 10.100
Svar
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 3. mars 2016, samþykkt.