Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 2. október 2015 var lögð fram umsókn Igors Ingvars V. Karevskiy, mótt. 23. september 2015, varðandi breytingu á deiliskipulagi Teigahverfis vegna lóðarinnar nr. 47 við Laugarnesveg. Í breytingunni felst aukning á nýtingarhlutfalli lóðarinnar vegna óuppfyllts rýmis undir andyri hússins sem óskað er eftir að nýta sem óupphitaða geymslu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 2. október 2015.