Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga Plús arkitekta varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.152.5 vegna lóðarinnar nr. 57 við Hverfisgötu. Í breytingunni felst hækkun á húsinu um eina hæð ásamt auknu byggingarmagni á lóðinni samkvæmt uppdrætti Plús arkitekta dags. 18. desember 2012. Tillagan var auglýst frá 9. janúar til og með 20. febrúar 2013. Engar athugasemdir bárust.