Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 22. nóvember 2013 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 19. nóvember 2013 þar sem spurt er hvort leyft yrði að hækka þak og innrétta íbúðarrými í fjölbýlishúsi á lóð nr. 40 við Gunnarsbraut. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Neikvæð niðurstaða frá skipulagsfulltrúa dags. 18. apríl 2013 fylgir. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. nóvember 2013.