Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 5. apríl 2013 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 26. mars 2013 þar sem spurt er hvort leyft yrði að innrétta tvær litlar íbúðir í verslunarrými á jarðhæð íbúðar- og atvinnuhúss á lóð nr. 18 við Kambsveg. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. apríl 2013.