Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. október 2015 þar sem sótt er um leyfi til að byggja svalir og gera nýjar dyr út á þær á 1. og 2. hæð á suðvesturhlið fjölbýlishúss á lóð nr. 22 við Leifsgötu. Erindi fylgir samþykki meðeigenda í Leifsgötu 18-22 dags. í september 2015. Einnig útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 2. október 2015 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. október 2015. Gjald kr. 9.823