Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 3. júlí 2012 þar sem sótt er um leyfi til þess að bæta eldvarnir íbúðar 0201 við stigahús á fyrstu hæð og koma fyrir vinnurými, baðherbergi og þvottaaðstöðu á þakhæð sem tilheyrir íbúðinni. Jafnframt er sótt um að útbúa inndregnar þaksvalir í suðausturhorni fjölbýlishússins á lóðinni nr. 7 við Blönduhlíð. Sjá einnig erindi BN044594 sem samþykkt var 12. júní 2012. Samþykki meðeigenda (á teikn.) og umboð eins eiganda dags. 27. júní 2012 fylgir erindinu. Bréf hönnuðar dags. 26. júní 2012 fylgir erindinu. Ný skráningartafla fylgir erindinu. Gjald kr. 8.500
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Blönduhlíð 2, 4, 5 og 9.