Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Sigurðar Hallgrímssonar, mótt. 1. febrúar 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.190.1, Njálsgötureits, vegna lóðarinnar nr. 54B við Grettisgötu. Í breytingunni felst hækkun á nýtingarhlutfalli og fjölgun íbúða, samkvæmt uppdr. Arkþings, ódags. Einnig er lagt fram skuggavarp arkþings, ódags. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands, dags. 23. september 2014 og bókun Orkuveitu Reykjavíkur frá 15. mars 2016 þar sem fram kemur að kosnaður vegna mögulegrar færslu á lögnum er á kosnað lóðarhafa. Tillagan var grenndarkynnt frá 11. apríl til og með 9. maí 2016. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Jóhannes A. Levy, dags. 18. apríl 2016 og Elísabet Hafsteinsdóttir, dags. 9. maí 2016. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á fundi skipulagsfulltrúa 13. maí 2016 og er nú lagt fram að nýju.